![Bræður í Regluheimili Frímúrarareglunnar á Íslandi.](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fwp.frimurarareglan.is%2Fwp-content%2Fuploads%2F2022%2F12%2Fgsv-8569.jpg&w=3840&q=75)
Fyrsta frímúrarastúkan á Íslandi var stofnuð í janúar árið 1919 en hún starfaði innan dönsku Frímúrareglunnar. Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð 23. júlí 1951 og í dag eru félagsmenn um 3.500 talsins um allt land. Fundir eru haldnir reglulega í félagsheimilum sem staðsett eru víða um land, þar koma félagar í Frímúrarareglunni saman og funda eftir svo kölluðu stigkerfi. Frímúrarareglan er ekki leynifélag eða hagsmunahópur, en byggir starf sitt og tilveru á kristnum grundvelli þar sem boðið er upp á leiðir til andlegs þroska, vaxtar, íhugunar og tækifæri til að taka sér frí frá áreiti hins daglega lífs.
Frímúrarareglan tekur enga afstöðu í stjórnmála-, trúar- eða hagsmunadeilum í þjóðfélaginu, er óháð öllum en lýtur löglegum yfirvöldum hér á landi. Félagar í Frímúrarareglunni stunda einnig fjölbreytt félagsstarf, en innan hennar eru til að mynda starfandi ferðafélög, mótorhjólaklúbbur, hjólaklúbbur, golfklúbbur og fótboltaklúbbur.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fwp.frimurarareglan.is%2Fwp-content%2Fuploads%2F2017%2F01%2Fstofnfundur.jpg&w=1920&q=75)
Á Íslandi hefur Frímúrarareglan starfað eftir hinu svokallaða sænska kerfi, í yfir 100 ár. Kynntu þér söguna nánar hér.
Nánar![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fwp.frimurarareglan.is%2Fwp-content%2Fuploads%2F2016%2F12%2FRegluheimili-Akureyri.jpg&w=1920&q=75)
Frímúrarareglan á Íslandi starfar í svokölluðum stúkum, sem eru staðsettar vítt um landið.
Nánar