
Reykjavík, nóvember 2019
Regluhátíð Frímúrarareglunnar á Íslandi verður haldin með hátíðarfundi og veislustúku á I. stigi laugardaginn 18. janúar 2020.
Athugið að um er að ræða breytta dagsetningu frá útsendri starfsskrá!
Fundurinn hefst kl: 15:00 í Regluheimilinu í Reykjavík.
Einungis verða seldir 400 miðar í mat á Regluhátíðina.
- Skráning fer fram á heimasíðu Reglunnar frimur.is frá 2. desember 2019 n.k. til miðnættis 6. janúar 2020 og eru bræður hvattir til að nýta sér þann kost hvort heldur þeir skrá sig í mat eða einungis á fundinn.
- Bræður sem ekki geta nýtt sér netskráningu eru beðnir um að skrá sig og ganga frá greiðslu hjá siðameistara stúku sinnar sem fyrst og eigi síðar en 16. desember 2019.
Líkt og undanfarin ár er vænst mikillar þátttöku og verður því miður ekki unnt að ganga frá greiðslu fyrir málsverð eftir tilgreinda skráningardaga né heldur á sjálfan fundardaginn.
Allir bræður, sem tök hafa á, eru hvattir til að mæta.
St. Sm.