Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út nýja reglugerð um sóttvarnir vegna COVID-19, sem tekur gildi á miðnætti í nótt, 29. janúar 2022.
Fundir hefjast því á ný skv. starfsskrá mánudaginn næsta, 31. janúar 2022.
Þessi nýja reglugerð gerir það að verkum að fundir í stúkum (og aðrar samkomur) innan Frímúrarareglunnar á Íslandi, mega ekki fara yfir 50 þátttakendur. Því er krafa um forskráningar á alla fundi, sem fer fram hér á vef R.
SMR og Viðbragðsteymi R. leggja áherslu á að hvergi verði slakað á kröfum um sóttvarnir og að farið verði að reglum þessum í einu og öllu. Stjórnendur stúkna þurfa því að krefja bræður um forskráningu á fundi, þar sem fjöldatakmörkun er miðuð við 50.
Það er því í ákvörðunarvaldi hvers og eins Stj.M, Stm. eða Stj.br. hvort hann boðar til fundar/viðburðar og ef ákvörðunin er að boða hann þá verði hámarksfjöldi miðaður við 50.
Að lokum hvetur viðbragðsteymið alla bræður að huga vel að eigin forvörnum, sýna aðgát í hvívetna og taka ekki óþarfa áhættu né að taka ákvarðanir nema að vel íhuguðu máli. Fyrirspurnum og ábendingum skal vísa til Stjórnstofu.
Viðbragðsteymi R.